|
|
Fréttabréf Maí 2026Komið sæl og gleðilegt sumar! Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu. Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur. Myndasögusultur 13. og 26. maíAð vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 13. og 26. maí næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur. Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maíÓkeypis myndasögudagurinn er haldinn hátíðlegur laugardaginn 2. Maí í Nexus Glæsibæ. Þar verða amk. Tvö fríblöð til, stútfull af sögum eftir íslenska höfunda. Við vonumst til að sjá sem flest ykkar á staðnum. Ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta í Glæsibæ þá mælum við með að þið kíkið á bókasafn og takið ykkur eitthvað skemmtilegt að láni. Berum út fagnaðarerindi myndasagna hvar sem við getum! Kríukeppnin hefstÍMS kynnir: Kríukeppnina, Íslandsmót í myndasögugerð fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-17 ára. Keppnin hefst formlega 2. maí (ókeypis myndasögudaginn) og rennur skilafrestur út um miðnætti 28. ágúst (alþjóðlegan dag myndasögunnar). Þátttakendur hafa sumarið til að semja, teikna, lita, letra og senda myndasöguna sína inn. Sérstök dómnefnd rýnir svo í verkin og sigurvegarar verða svo tilkynntir á sérstakri athöfn síðar á árinu. Frekari upplýsinga má vitja á heimasíðu ÍMS: ims.is/kria ÍMS kynnir: MyndasögumaíÍ maí-mánuði mun ÍMS stýra instagram-leik í anda Inktober:
Reglurnar eru einfaldar: Semjið 1-4. ramma myndasögu innblásna af þema hvers dags. Deilið sögunum á félagsmiðlum ásamt stikkorðinu #myndasogumai26. Njótið áskorunarinnar. Ekki reyna að uppfylla öll þemun. Þetta á fyrst og fremst að vera gaman! KastljósÍ hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er… Einar Valur Másson
Hver ert þú?Það þekkja mig flestir hér en ég er myndasöguhöfundur, ritstjóri, stofnmeðlimur og núverandi formaður ÍMS. Ég þýddi og endurletraði Myndasögur og máttur þeirra (Understanding Comics) sem ÍMS gaf svo út árið 2022. Ég er líka fyrsti íslenski heimsmeistarinn í myndasögum!
Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?Frá því ég man eftir mér. Ég held að mamma og pabbi eigi ennþá til myndasögur sem ég samdi þegar ég var u.þ.b. fjögurra-fimm ára, byggðar á He-Man köllunum mínum. Ég valdi samt ekki myndlistaferilinn fyrr en ég var orðinn 25 ára og hef samið myndasögur af alvöru frá því um 2012.
Áttu þér uppáhaldshöfunda?Evrópsku meistararnir mótuðu smekk minn þegar ég var ungur: Tome & Janry, Morris & Goscinny og Hergé. Í dag hallast ég að breskum og norður-amerískum höfundum á borð við Grant Morrison, Erica Henderson, John Allison, Kyle Starks og Stan Sakai.
Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?Úff! Þegar stórt er spurt… ætli ég sé ekki stoltastur af umhverfunum mínum? Ég legg alltaf ríka áherslu á að umhverfin séu svolítið lifandi í myndasögunum mínum. Hvað viltu læra að gera næst?Ég vil læra að semja lengri sögur. Ég er mjög flinkur í að semja stuttar sögur (ég legg mikla áherslu á að koma mér að efninu í myndasögum) en ég held ég sé tilbúinn að takast á við stærra og metnaðarfullra verk. Hverskonar sögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?Ætli ég vilji ekki sjá vandaðri og metnaðarfyllri sögur. Sögur sem tjá skoðun og viðhorf höfundarins, sem geta haldið í við evrópska frændur okkar hvað varðar myndlistina. Bæði meira „flash“ og meira „substance“ eins og segir á góðri íslensku. Ég held það sé alveg að bresta á.
Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?Það er ansi langt síðan ég birti sögurnar mínar annars staðar en í safnblöðum eins og Myndarsögum. Það er ennþá eitthvað eftir mig inni á instagram undir @emassonart og svo má fletta gegnum fimm ára afrakstur samstarfs míns við Jono Duffy á GayIceland.is. Annars lofa ég að setja eitthvað upp á heimasíðunni minni: emassonart.com
Fréttabréf Apríl 2026Komið sæl, Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu. Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur. Myndasögusultur 8. og 28. aprílAð vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 8. og 28. apríl næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur. Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maíDagur ókeypis myndasögunnar (Free Comic Book Day) er rétt handan við hornið og vinir okkar í Nexus fagna honum að vanda með stærðarinnar viðburði laugardaginn 2. maí í Glæsibæ. Ókeipiss, ókeypis myndasögusafnið í ritstjórn og útgáfu Hugleiks Dagsson, snýr einnig aftur eftir tíu ára langan dvala. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að deila myndasögum með almenningi. Í þeirra orðum: NEXUS OG ÓKEIPISS KYNNA MYNDASÖGUÁSKORUN 2026Nýtt tölublað Ókeipiss kemur út 2.maí! Ókeipiss er ókeypis myndasögublað sem kemur út á Ókeypismyndasögudeginum ( http://www.freecomicbookday.com/ ). Við hvetjum alla til að taka þátt og senda okkur efni! Reglurnar í ár eru þessar:
Bestu sögurnar verða birtar í blaðinu. Sendið sögurnar í góðri upplausn á okeipiss@gmail.com Skilafrestur er 15. apríl. Fyrir miðnætti. Vertu með þarna þú! Ókei bæ! Vantar slatta í meðlimaskránaEnn eru þónokkrir sem eiga eftir að senda inn upplýsingarnar sínar fyrir meðlimaskrá ÍMS. Við hvetjum virka meðlimi til að senda okkur mynd af sér, mynd af myndlist, stutta ferilslýsingu og hlekk á portfolio-ið sitt sem fyrst svo við getum komið skránni í loftið.
KastljósÍ hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er… Hjalti Gunnar TryggvasonHver ert þú?Ég heiti Hjalti Gunnar Tryggvason. Ég lít á mig sem allt-muligt menni þegar kemur að myndlist. Ég er frændi, ég er vinur og ég er kjáni. Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?Ætli það hafi ekki byrjað af einhverri alvöru í háskóla. Margar stafrænar sögur sem voru nýttar í hin ýmsu verkefni. Ég hef verið að leika mér að því ansi lengi. Stærðfræðibækur úr 7.bekk er t.d. fylltar af 1-3 ramma sögum innblásnum af Gretti. Áttu þér uppáhaldshöfunda?Ég á svo erfitt með að gera einn að uppáhalds. Það eru svo margir sem ég held upp á, eins og Tim Probert, Jordi Lafebre, Scottie Young, Jorge Corona, Matías Bergara og svo margir fleiri. Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?Kjölurinn hugsa ég. Það er hægt að hamra eitthvað almennilega með þeirri hlið. Hvað viltu læra að gera næst?Ég vil leggja áherslu á að bæta mig í skrifum. Það er hlið sem ég hef ekki sinnt nóg í lengri tíma og finn hvað það heldur aftur af mér núna. Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?Ég setti þær flestar á twitter á sínum tíma en er núna búinn að loka fyrir það eftir að það varð að X. Markmiðið er að setja upp heimasíðu og þá myndi ég eflaust setja þær þangað. Fréttabréf Mars 2026Komið sæl, Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu. Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur. Myndasögusultur 11. og 24. marsAð vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 11. og 24. febrúar næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur. Heimasíða ÍMS er komin á loftÍMS á nýja heimasíðu! Kíkið á hana hér: https://www.ims.is/ Heimasíðan okkar er ennþá svolítið hrá en er hægt og rólega að taka á sig fallegri mynd. Við hvetjum meðlimi okkar til að senda inn myndlist sem mun svo róterast efst á heimasíðunni. Hér er snið fyrir fólk til að fylgja. Takið eftir að við munum bæta „ÍSLENSKA MYNDASÖGU- SAMFÉLAGIГ við myndina, öðru hvoru megin eftir því sem hentar hverri mynd, ásamt nafni höfundar.
Meðlimaskrá í bígerðMeðlimaskrá ÍMS er farin að taka á sig mynd og vonumst við til að hún komist á flug um næstu mánaðamót. Enn vantar talsvert af innsendu efni frá virkum meðlimum okkar og viljum við hvetja ykkur til að leiðrétta það. Við ítrekum að meðlimir senda eftirfarandi atriði inn á islmynsam@gmail.com:
Hér er mynd af skránni (í vinnslu) til að sjá sirka hvernig hún mun líta út:
Meðlimagjöld sentVið höfum sent 5.000kr. árgjald í heimabanka allra skráðra meðlima ÍMS. Þetta er árlegt gjald sem hjálpar okkur að bjóða meðlimum upp á endurgjöf frá fagfólki á verk í vinnslu, vinnustofur og fræðsluskot um myndasögugerð, afslætti hjá völdum verslunum og þjónustum, borgar viðhaldskostnað á heimasíðu ÍMS, og alls konar annað skemmtilegt. KastljósÍ hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er… Kris Halla HelgaHver ert þú?Ég heiti Kris Helga, skynsegin listamaður frá Hafnarfirði. Ég er að klára teikninám í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?Um 4 ár núna. Áttu þér uppáhaldshöfunda?Junji Ito er í miklu uppáhaldi hjá mér og Brian K Vaughan er snilldar höfundur, elska sögunar hans. Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?Mín sterkasta hlið er flæði milli ramma. Hvað viltu læra að gera næst?Letrun. Áttu þér uppháldsmiðil til að vinna í?Ég er mikið í mixed media en gríp oftast í vatnslitina. Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?Ég var að starta myndasögu-insta þar sem ég pósta vikulegum 4-panel slice-of-life myndasögum og öðrum myndasöguverkefnum https://www.instagram.com/kris.comics/ |
|
| © Íslenska myndasögusamfélagið, 2026 | |