Myndasögusultur

ÍMS heldur svokallaðar „myndasögusultur“ tvisvar í mánuði sem eru öllum opnar. Þetta eru óformlegir hittingar þar sem fólk spjallar saman, kynnir verk sem þau eru að vinna að, fær gagnrýni (ef um er beðið), eða teiknar bara í rólegheitunum.

Sulturnar eru haldnar tvisvar í mánuði uppi á fjórðu hæð Loft Hostel við Bankastræti 7 í Reykjavík, miðvikudag fyrir miðjum mánuði og síðasta þriðjudag hvers mánaðar. Mæting er milli kl. 17:00 og 20:00.

ATH!: Algengt er að gestir kaupi sé áfenga drykki til að njóta á meðan hittingnum stendur en engum er skyldugt að drekka sem ekki vill. Nóg er til að óáfengum veitingum.

Næsta sultur verða haldnar: miðvikudag 13. maí og þriðjudag 26. maí, 17:00-20:00.

Myndasögumaí áskorun ÍMS

Í maí-mánuði vill ÍMS fagna myndasögum með teikniáskorun í anda Inktober á félagsmiðlum:

Reglurnar eru einfaldar: Semjið 1-4. ramma myndasögu innblásna af þema hvers dags. Deilið sögunum á félagsmiðlum ásamt stikkorðinu #myndasogumai26. Njótið áskorunarinnar.

Ekki reyna að uppfylla öll þemun. Þetta á fyrst og fremst að vera gaman!

© Íslenska myndasögusamfélagið, 2026