Fréttabréf Júní 2026

Komið sæl!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 10. og 30. júní

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 10. og 30. júní næstkomandi. Við ætlum aðeins að bregða út af laginu með því að halda 10. júní hittinginn milli 19:00 og 22:00 og 30. júní milli 17:00 og 20:00. Við vonumst til að sjá fleiri gesti með því að bjóða fjölbreytni í mætingatímum.

Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Myndasöguhátíð Siglufjarðar tilkynnt

Myndasöguhátíð Siglufjarðar verður haldin í þriðja sinn 11.-13. september næstkomandi. Við hvetjum alla meðlimi ÍMS til að skrá sig sem fyrst og hlökkum til að sjá ykkur þar.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Sólveig Eva Magnúsdóttir

Hver ert þú?

Sólveig Eva Magnúsdóttir - rithöfundur, myndhöfundur, leikkona og ein af stofnendum leikhópsins Spindrift. Ég skapa myndasögur fyrir blöð s.s. The Washington Post, The New Yorker, LA Times, Boston Globe, McSweeney's og fleiri, og er með tvær grafískar skáldsögur í vinnslu og útgáfuferli í Bandaríkjunum: Pretty Privilege um stéttaskiptingu Bandaríkjanna og grá svæði ofbeldis og Space Mama Piggy um móðurhlutverkið, skömm og kvíða.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Frá því ég var barn, en ég fór að fikta með myndasögupersónu, Space Mama Piggy, af alvöru árið 2017 sem eins konar tragic clown til að hlæja að og persónugera eigin meðvirkni og kvíða. Svo má segja að í Covid þegar leikarabransinn lokaði árum saman fór ég að byrja af alvöru að helga mér myndasöguformið sem útrás í staðinn.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Ég elska samtölin og mannlega hegðun í bókum eftir Rutu Modan, t.d. er Exit Wounds alveg frábær. Hins vegar er Tove Jansson alltaf drottningin — ég vildi ég ætti kot og matarpening til að búa í náttúrunni og teikna hjartnæma kjána liðlangan daginn eins og hún.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Fyrst og fremst örugglega bara að láta sjálfa mig hlæja, en ég reyni að skrifa einlægar sögur frá hjartanu sem gætu vonandi hlúað að sárindum eða veitt félagsskap fyrir erfiðar tilfinningar lesenda.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég er hæg og verð auðveldlega pirruð þegar ég teikna nákvæma þrívídd í mikilli nærmynd. Ég þarf að nenna að gera fleiri einfaldar tækniæfingar oftar til að verða hraðari og betri með svona basic undirstöðuatriði...!

Hverskonar myndasögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ég dáist að allri gróskunni hér og fjölbreytni hennar, húmor og hæfileikum. Sjálfri finnst mér að ríkið þurfi að viðurkenna menningarlegt gildi grafískra myndasagna og fjármagna longform vönduð metnaðarfull verkefni svo við getum séð fleiri svoleiðis bækur á hillunum og þjóðin fái að læra og njóta alls sem býr í þessu listformi. Ég elska sjálf höfunda sem skrifar langar, flóknar, einlægar, journalistic sögur um erfið mannleg samskipti eða pólitísk viðfangsefni fyrir fullorðna lesendur, og mér finnst ferleg skömm að menningarpésarnir okkar séu ekki búnir að fatta verðgildi formsins þegar kemur að því að gera flókin og þung viðfangsefni aðgengileg lesendum á öllum aldri.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég er á @solaevadraws á instagram og á www.solaevadraws.com má finna ýmsar greinar, verk og yfirlit yfir bækurnar mínar. Næsta ráðstefna sem er bókuð hjá mér verður Thought Bubble Festival í Yorkshire í haust. Svo ættu að vera eintök eftir af Pancake Cravings, Four Family Stories eða Neistar í Pennanum, Skáldu, Nexus Glæsibæ, Stúdentakjallaranum, Reykjavík Books and Chocolate, Gömlu bókabúðinni og víðar.

Fréttabréf Maí 2026

Komið sæl og gleðilegt sumar!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 13. og 26. maí

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 13. og 26. maí næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maí

Ókeypis myndasögudagurinn er haldinn hátíðlegur laugardaginn 2. Maí í Nexus Glæsibæ. Þar verða amk. Tvö fríblöð til, stútfull af sögum eftir íslenska höfunda. Við vonumst til að sjá sem flest ykkar á staðnum.

Ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta í Glæsibæ þá mælum við með að þið kíkið á bókasafn og takið ykkur eitthvað skemmtilegt að láni. Berum út fagnaðarerindi myndasagna hvar sem við getum!

Kríukeppnin hefst

ÍMS kynnir: Kríukeppnina, Íslandsmót í myndasögugerð fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-17 ára. Keppnin hefst formlega 2. maí (ókeypis myndasögudaginn) og rennur skilafrestur út um miðnætti 28. ágúst (alþjóðlegan dag myndasögunnar). Þátttakendur hafa sumarið til að semja, teikna, lita, letra og senda myndasöguna sína inn. Sérstök dómnefnd rýnir svo í verkin og sigurvegarar verða svo tilkynntir á sérstakri athöfn síðar á árinu.

Frekari upplýsinga má vitja á heimasíðu ÍMS: ims.is/kria

ÍMS kynnir: Myndasögumaí

Í maí-mánuði mun ÍMS stýra instagram-leik í anda Inktober:

Reglurnar eru einfaldar: Semjið 1-4. ramma myndasögu innblásna af þema hvers dags. Deilið sögunum á félagsmiðlum ásamt stikkorðinu #myndasogumai26.

Njótið áskorunarinnar. Ekki reyna að uppfylla öll þemun. Þetta á fyrst og fremst að vera gaman!

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Einar Valur Másson

Hver ert þú?

Það þekkja mig flestir hér en ég er myndasöguhöfundur, ritstjóri, stofnmeðlimur og núverandi formaður ÍMS. Ég þýddi og endurletraði Myndasögur og máttur þeirra (Understanding Comics) sem ÍMS gaf svo út árið 2022. Ég er líka fyrsti íslenski heimsmeistarinn í myndasögum!

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Frá því ég man eftir mér. Ég held að mamma og pabbi eigi ennþá til myndasögur sem ég samdi þegar ég var u.þ.b. fjögurra-fimm ára, byggðar á He-Man köllunum mínum. Ég valdi samt ekki myndlistaferilinn fyrr en ég var orðinn 25 ára og hef samið myndasögur af alvöru frá því um 2012.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Evrópsku meistararnir mótuðu smekk minn þegar ég var ungur: Tome & Janry, Morris & Goscinny og Hergé. Í dag hallast ég að breskum og norður-amerískum höfundum á borð við Grant Morrison, Erica Henderson, John Allison, Kyle Starks og Stan Sakai.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Úff! Þegar stórt er spurt… ætli ég sé ekki stoltastur af umhverfunum mínum? Ég legg alltaf ríka áherslu á að umhverfin séu svolítið lifandi í myndasögunum mínum.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég vil læra að semja lengri sögur. Ég er mjög flinkur í að semja stuttar sögur (ég legg mikla áherslu á að koma mér að efninu í myndasögum) en ég held ég sé tilbúinn að takast á við stærra og metnaðarfullra verk.

Hverskonar sögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ætli ég vilji ekki sjá vandaðri og metnaðarfyllri sögur. Sögur sem tjá skoðun og viðhorf höfundarins, sem geta haldið í við evrópska frændur okkar hvað varðar myndlistina. Bæði meira „flash“ og meira „substance“ eins og segir á góðri íslensku. Ég held það sé alveg að bresta á.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Það er ansi langt síðan ég birti sögurnar mínar annars staðar en í safnblöðum eins og Myndarsögum. Það er ennþá eitthvað eftir mig inni á instagram undir @emassonart og svo má fletta gegnum fimm ára afrakstur samstarfs míns við Jono Duffy á GayIceland.is. Annars lofa ég að setja eitthvað upp á heimasíðunni minni: emassonart.com

Fréttabréf Apríl 2026

Komið sæl,

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 8. og 28. apríl

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 8. og 28. apríl næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maí

Dagur ókeypis myndasögunnar (Free Comic Book Day) er rétt handan við hornið og vinir okkar í Nexus fagna honum að vanda með stærðarinnar viðburði laugardaginn 2. maí í Glæsibæ. Ókeipiss, ókeypis myndasögusafnið í ritstjórn og útgáfu Hugleiks Dagsson, snýr einnig aftur eftir tíu ára langan dvala. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að deila myndasögum með almenningi. Í þeirra orðum:

NEXUS OG ÓKEIPISS KYNNA MYNDASÖGUÁSKORUN 2026

Nýtt tölublað Ókeipiss kemur út 2.maí! Ókeipiss er ókeypis myndasögublað sem kemur út á Ókeypismyndasögudeginum ( http://www.freecomicbookday.com/ ). Við hvetjum alla til að taka þátt og senda okkur efni!

Reglurnar í ár eru þessar:

  • a) Að minnsta kosti ein síða. Í mesta lagi tvær síður.
  • b) Má vera í lit og má líka vera ekki í lit.
  • c) Má vera eftir einn eða fleiri. höfundar og teiknarar sameinist!
  • d) Ekki enda söguna á "framhald síðar". Sagan verður að standa ein og sér.
  • z) blaðið verður prentað í stærðinni B5 (176mm × 250mm). En A4 sleppur líka alveg.

Bestu sögurnar verða birtar í blaðinu.

Sendið sögurnar í góðri upplausn á okeipiss@gmail.com

Skilafrestur er 15. apríl. Fyrir miðnætti.

Vertu með þarna þú!

Ókei bæ!

Vantar slatta í meðlimaskrána

Enn eru þónokkrir sem eiga eftir að senda inn upplýsingarnar sínar fyrir meðlimaskrá ÍMS. Við hvetjum virka meðlimi til að senda okkur mynd af sér, mynd af myndlist, stutta ferilslýsingu og hlekk á portfolio-ið sitt sem fyrst svo við getum komið skránni í loftið.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Hjalti Gunnar Tryggvason

Hver ert þú?

Ég heiti Hjalti Gunnar Tryggvason. Ég lít á mig sem allt-muligt menni þegar kemur að myndlist. Ég er frændi, ég er vinur og ég er kjáni.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Ætli það hafi ekki byrjað af einhverri alvöru í háskóla. Margar stafrænar sögur sem voru nýttar í hin ýmsu verkefni. Ég hef verið að leika mér að því ansi lengi. Stærðfræðibækur úr 7.bekk er t.d. fylltar af 1-3 ramma sögum innblásnum af Gretti.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Ég á svo erfitt með að gera einn að uppáhalds. Það eru svo margir sem ég held upp á, eins og Tim Probert, Jordi Lafebre, Scottie Young, Jorge Corona, Matías Bergara og svo margir fleiri.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Kjölurinn hugsa ég. Það er hægt að hamra eitthvað almennilega með þeirri hlið.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég vil leggja áherslu á að bæta mig í skrifum. Það er hlið sem ég hef ekki sinnt nóg í lengri tíma og finn hvað það heldur aftur af mér núna.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég setti þær flestar á twitter á sínum tíma en er núna búinn að loka fyrir það eftir að það varð að X. Markmiðið er að setja upp heimasíðu og þá myndi ég eflaust setja þær þangað.

Fréttabréf Mars 2026

Komið sæl,

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 11. og 24. mars

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 11. og 24. febrúar næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Heimasíða ÍMS er komin á loft

ÍMS á nýja heimasíðu! Kíkið á hana hér: https://www.ims.is/

Heimasíðan okkar er ennþá svolítið hrá en er hægt og rólega að taka á sig fallegri mynd. Við hvetjum meðlimi okkar til að senda inn myndlist sem mun svo róterast efst á heimasíðunni.

Hér er snið fyrir fólk til að fylgja. Takið eftir að við munum bæta „ÍSLENSKA MYNDASÖGU- SAMFÉLAGIГ við myndina, öðru hvoru megin eftir því sem hentar hverri mynd, ásamt nafni höfundar.

Meðlimaskrá í bígerð

Meðlimaskrá ÍMS er farin að taka á sig mynd og vonumst við til að hún komist á flug um næstu mánaðamót. Enn vantar talsvert af innsendu efni frá virkum meðlimum okkar og viljum við hvetja ykkur til að leiðrétta það.

Við ítrekum að meðlimir senda eftirfarandi atriði inn á islmynsam@gmail.com:

  • Mynd af þér (helst ljósmynd en má líka vera teiknuð mynd)
  • Stutt lýsing á þér sem listahöfundi (menntun, helstu verk, innblástur, etc.), uþb. 50 orð
  • Mynd sem endurspeglar myndlistina þína vel
  • Hlekkur á portfolio-síðu (má vera heimasíða, instagram, Cara eða hvað sem þér hentar…)
  • Tölvupóstur þar sem má hafa samband við þig varðandi listina þína
  • Heimilisfang (þetta birtist ekki á vefnum, þetta er svo við getum komið nýja félagsskírteininu þínu til þín)

Hér er mynd af skránni (í vinnslu) til að sjá sirka hvernig hún mun líta út:

Meðlimagjöld sent

Við höfum sent 5.000kr. árgjald í heimabanka allra skráðra meðlima ÍMS. Þetta er árlegt gjald sem hjálpar okkur að bjóða meðlimum upp á endurgjöf frá fagfólki á verk í vinnslu, vinnustofur og fræðsluskot um myndasögugerð, afslætti hjá völdum verslunum og þjónustum, borgar viðhaldskostnað á heimasíðu ÍMS, og alls konar annað skemmtilegt.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Kris Halla Helga

Hver ert þú?

Ég heiti Kris Helga, skynsegin listamaður frá Hafnarfirði. Ég er að klára teikninám í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Um 4 ár núna.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Junji Ito er í miklu uppáhaldi hjá mér og Brian K Vaughan er snilldar höfundur, elska sögunar hans.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Mín sterkasta hlið er flæði milli ramma.

Hvað viltu læra að gera næst?

Letrun.

Áttu þér uppháldsmiðil til að vinna í?

Ég er mikið í mixed media en gríp oftast í vatnslitina.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég var að starta myndasögu-insta þar sem ég pósta vikulegum 4-panel slice-of-life myndasögum og öðrum myndasöguverkefnum https://www.instagram.com/kris.comics/

© Íslenska myndasögusamfélagið, 2026