Kríu-keppnin

Kríukeppnin er Íslandsmót í myndasögum fyrir ungt áhugafólk um myndasögugerð. Hún er opin öllum börnum á aldrinum 8 til 17 ára og eru vegleg verðlaun í boði.

Keppnin hefst 2. maí (ókeypis myndasögudaginn) og skilafrestur rennur út um miðnætti 28. ágúst (alþjóðlega dag myndasögunnar).

Þátttakendur hafa sumarið til að semja, teikna, lita og letra myndasöguna sína og senda hana inn.

Sérstök dómnefnd rýnir svo vandlega í verkin og sigurvegarinn er tilkynntur á Kríuverðlaunahátíðinni seinna á árinu.

Nánari upplýsingar

Keppninni er skipt í tvo aldursflokka: 8-12 ára og 13-17 ára.

Verkið má vera í lit eða svarthvítt. Verkið skal undirbúið fyrir A4-pappírsstærð (21cm x 29,7cm) með 15mm spássíu. Verkið má vera 1 til 16 blaðsíður að lengd.

Þátttakendum er heimilt að stofna teymi, t.d. einn handritshöfund og einn teiknara, tvo meðhöfunda sem skiptast á römmum eða blaðsíðum, eða hvaða aðra samsetningu sem hentar. Ef aldursmunur er innan teymis verður verkið flokkað eftir yngsta meðlim.

Þátttakendur skulu senda inn stafræn afrit af verkum sínum á islmynsam (at) gmail (punktur) com. Verkin skulu vistuð sem .JPG eða .PNG skjöl og nefnd greinilega eftir þessu formi: [nafn höfundar eða höfunda]_[tala blaðsíðu].

Til dæmis myndu meðhöfundarnir Guðrún og Eyjólfur senda fjögurra blaðsíðna verk svona: GudrunEyjo_01.jpg, GudrunEyjo_02.jpg, GudrunEyjo_03.jpg, GudrunEyjo_04.jpg

Með verkinu skal fylgja fullt nafn/nöfn höfunda (teymisnöfn eru líka velkomin), kennitölur, titill á verki, símanúmer og tölvupóstur.

Nánari spurningar má senda á islmynsam (at) gmail (punktur) com.

© Íslenska myndasögusamfélagið, 2026